Bækur
Listi af bókum og fræðsluefni um málefni trans fólks, bæði fyrir börn og fullorðna.
Ég er Jazz
Frá því að hún var tveggja ára gömul vissi Jazz að hún væri stelpa þó að allir héldu að hún væri strákur. Hún elskaði bleikan og að klæða sig eins og hafmeyju og leið ekki eins og henni sjálfri þegar hún klæddist fötum eins og flestir strákarnir voru í. Þetta var ruglingslegt fyrir fjölskyldu hennar, þar til þau fóru með hana til læknis sem greindi Jazz sem trans og útskýrði að hún væri fædd á þennan hátt. Trans börn eru allskonar eins og önnur börn. Þau hafa misjafnan fatasmekk og misjöfn áhugamál. En þetta er saga Jazz sem byggir á upplifun hennar. Hún segir frá á einfaldan og skýran hátt sem höfðar vel til barna, foreldra og kennara.
Notkunarleiðbeiningar fyrir bókina Ég er Jazz
Trans barnið
Handbók fyrir fjölskyldur og fagfólk
Síðustu ár hafa æ fleiri börn stigið fram á Íslandi sem trans. Bókin byggir á klínískri reynslu og viðtölum og leiðbeinir fjölskyldum og fagfólki í gegnum grunnhugtök og þann ferli sem fylgir því að vera foreldri trans eða kynvitund-óhefðbundins barns.
If I Was Your Girl
„My name is Amanda. I'm 18. Because I haven't always been Amanda. When I was born, I was named Andrew."
Skáldsaga á ensku fyrir ungt fullorðið fólk eftir Meredith Russo, sem fjallar um sjálfsmynd, viðurkenningu og að deila sögu sinni í nýju umhverfi.
Júlían er hafmeyja
Myndabók eftir Jessica Love
Þegar Júlían sér þrjár töfrandi konur klæddar sem hafmeyjur í lestinni breytist allt. Það eina sem kemst að í huga hans er að verða sjálfur hafmeyja. En hvað mun ömmu finnast um það? Hlý og falleg myndabók um að þora að vera maður sjálfur.
Júlían í brúðkaupinu
Myndabók eftir Jessica Love
Júlían fer í eftirminnilegt brúðkaup og eignast nýjan vin, Marísól. Saman halda þau á vit töfra og ævintýra. Hlý framhaldsbók höfundar „Júlían er hafmeyja" um vináttu og að vera maður sjálfur.
Bæklingur fyrir trans börn og ungmenni í íþróttum
Sækja bækling (PDF) — upplýsingar fyrir íþróttafélög.