Markmið Trans vina
Efla félagsleg tengsl á meðal foreldra og forsjáraðila trans barna, ungmenna og fullorðinna trans einstaklinga.
Stuðla að félagslífi fyrir börn og ungmenni sem eru trans og þeirra sem eru ekki viss um sína kynvitund.
Styrkja og stuðla að frumkvæði foreldra og forsjáraðila trans einstaklinga, til að standa fyrir viðburðum þar sem allir félagsmenn Trans vina skulu hafa jafnan kost á að vera þátttakendur.
Standa fyrir viðburðum fyrir alla félagsmenn og fjölskyldur minnst tvisvar á ári og taka þátt í Hinsegin dögum.
Auka samstöðu og samheldni foreldra og forsjáraðila trans eintaklinga og fjölskyldna þeirra sem taka þátt í starfsemi Trans vina.
Vera vettvangur fyrir foreldra og forsjáraðila að kynnast hinsegin samfélaginu, að styrkja barnið sitt og veita þeim stuðning í formi fræðslu og félagsskapar.
Vera þrýstihópur til að koma málefnum okkar á framfæri. Þar á meðal gagnvart stjórnvöldum, heilbrigðiskerfinu og öðrum stofnunum sem koma að okkur málefnum.